Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        50 - 71 cm 
Þyngd:        2000 g
Vænghaf:   80  -  108 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Stór kafönd sem heldur sig nær eingöngu á og við sjó og er algengasta önd landsins.

Æðarfuglinn er fremur þungur á sér á flugi og flýgur beint, hratt og lágt yfir ölduföldunum. Er þungur til flugs en afbragðs kafari.

Gengur reistur og vaggandi.

Er ávallt félagslyndur og oftast spakur.

Á vefnum Fjaran og hafið er myndband af æðarfugli.

Fæða: Kræklingur og önnur skeldýr, krabbadýr, grásleppuhrogn, fiskúrgangur.

Æðarfugl   -   Somateria mollissima

Fjöldi eggja:   3 - 6    
Liggur á:       25 - 28  daga
Ungatími:      65 - 75 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Æðarfuglinn er sjófugl, einnig á varptíma, en slæðingur verpur við ár og vötn allt að 20 km frá sjó. Hann verpur í byggðum, oft stórum og þéttum, í hólmum eða þar sem hann nýtur verndar.

Hreiðrið er opið, fóðrað með hinum verðmæta dúni og oftast staðsett við einhverja mishæð eða í manngerðum varphólfum.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort