Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        52 - 58 cm 
Þyngd:        1100 g
Vænghaf:   70  -  86 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Toppönd er algengasta fiskiöndin hér, grannvaxin, hálslöng og rennileg, vaxtarlagið minnir á skarfa og brúsa. Flýgur venjulega lágt og hratt með sterklegum vængjatökum.

Toppöndin er félagslynd og er oft í litlum hópum. Tilhugalífið er oft afar fjörlegt og mikil læti í karlfuglinum á útmánuðum og vorin.

Afbragðs kafari og góð til gangs og sést stundum veiða í hópum og hrekja bráðina á undan sér inn á grynningar.

Fæða: Fiskur og krabbadýr.

Toppönd   -   Mergus serrator

Fjöldi eggja:   8 - 11    
Liggur á:       31 - 32  daga
Ungatími:      60 - 65 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Toppöndin verpur við stöðuvötn, ár og strendur, aðallega á láglendi en er sjaldgæf á hálendinu.

Hreiðrið er vel falið í gróðri eða holum og sprungum, fóðrað með sinu og dúni.

Á vetrum leitar hún út á sjó og steggir fella fjaðrirnar aðallega á sjó. Sést miklu sjaldnar á ferskvatni á veturna en frænka hennar, gulöndin.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort