
Skúföndin er fremur lítil og nett önd og er algengasta kaföndin á láglendi.
Skúfönd er félagslynd á öllum árstímum.
Hún flýgur hratt með hröðum vængjatökum, er djúpsynd og fimur kafari en þung til flugs og hleypur á vatni í flugtaki eins og aðrar kafendur. Sést sjaldan á landi.
Henni svipar til duggandar en er grennri, með annað höfuðlag, styttri háls og dekkri búning.
Fæða:
Rykmýslirfur, vatnabobbar, botnkrabbar og hornsíli.
Fjöldi eggja:
8 - 11
Liggur á:
25 daga
Ungatími:
45 - 50 dagar