Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        50 - 65 cm 
Þyngd:        1100 g
Vænghaf:   81  -  98 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Algeng, stór buslönd sem flestir kannast við. Stokkönd er stærst og þéttvöxnust buslandanna og oftast auðgreind.

Hún flýgur hratt með grunnum vængjatökum og flýgur snöggt upp af vatni með bröttu uppflugi. Á auðvelt með gang og gengur í láréttri stöðu.

Hún leitar sér ætis með því að hálfkafa með bakhlutann upp í loft, aðeins með haus og háls undir yfirborði, eða hún tínir æti úr vatnsborði.

Karlfuglinn yfirgefur kvenfuglinn meðan hann liggur á og safnast steggirnir í hópa til að fella flugfjaðrir. Pörun stendur síðan yfir allan veturinn fram á vor.

Fæða: Vatnaplöntur, skordýr og fræ.

Stokkönd   -   Anas platyrhynchos

Fjöldi eggja:   6 - 12    
Liggur á:       27 - 28  daga
Ungatími:      50 - 60 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í margs konar kjörlendi, þó aðallega í og við votlendi á láglendi, oft nærri mannabústöðum.

Hreiðrið er venjulega vel falið í gróðri, milli steina eða þúfna, í drasli o.s.frv., gert úr grasi og fóðrað með dúni.

Stokkendur fella flugfjaðrir á vötnum og tjörnum girtum stör.

Eru á veturna við strendur en einnig á íslausu ferskvatni.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort