Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        75 - 90 cm 
Þyngd:        3500 g
Vænghaf:   147  -  180 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Grágæs er stærst þeirra gæsa sem verpa eða hafa viðdvöl á Íslandi. Grágæsir halda sig oftast í hópum utan varptíma, fara þá um í oddaflugi og skiptast á um að hafa forystu.

Flugið er beint og kraftmikið. Þær eru mest á ferli í dögun og rökkurbyrjun.

Pörin halda saman árið um kring og annast uppeldi unga í sameiningu, kvenfuglinn ungar út meðan karlfuglinn stendur á verði.

Fæða: Plöntur.

Grágæs   -   Anser anser

Fjöldi eggja:   4 - 7    
Liggur á:       27 - 28  daga
Ungatími:      50 - 60 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur aðallega neðan 300 m hæðarlínu, í mýrum, hólmum og grónum eyjum, á ár- og vatnsbökkum eða í kjarri og lyngmóum, oft í dreifðum byggðum, alltaf í nánd við vatn þar sem gæsirnar geta leitað athvarfs með ófleyga unga og þegar þær eru í sárum. Hreiðrið er dæld í gróður.

Eru utan varptíma gjarnan í ræktuðu landi, t.d. túnum, ökrum og kartöflugörðum, en einnig í votlendi.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort