
Þessi söngfagri fugl er einkennisfugl íslenskra birkiskóga og garða í þéttbýli. Um leið og skógarþrösturinn kemur til landsins á vorin byrjar karlfuglinn að syngja og helga sér svæði.
Hann er félagslyndur utan varptíma og fer þá um í flokkum.
Hann hoppar oftast jafnfætis á jörðu niðri.
Fæða:
Ormar, skordýr og ber.
Fjöldi eggja:
4 - 6
Liggur á:
12 - 13 daga
Ungatími:
13 - 14 dagar