Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        145 - 160 cm 
Þyngd:        10000 g
Vænghaf:   218  -  243 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Álftin er stærsti varpfugl landsins. Hún er eini innlendi svanurinn og auðþekkjanleg frá öðrum íslenskum fuglum á stærð, lit og löngum hálsi.

Flugið er kröftugt með sterklegum, hægum vængjatökum. Álftin teygir hálsinn beint fram á flugi en heldur honum lóðréttum á sundi. Hún hleypur á vatni þegar hún hefur sig til flugs.

Hún leitar ætis bæði á þurru landi og vatni og hálfkafar þá oft, með afturendann upp í loft. Félagslynd, venjulega í hópum nema á varptíma en þá verja hjónin óðal.

Álftir fella flugfjaðrir síðsumars, eru þá ófleygar um tíma og er þá sagt að þær séu „í sárum“.

Fæða: Vatnaplöntur og gras.

Álft   -   Cygnus cygnus

Fjöldi eggja:   2 - 6    
Liggur á:       34 - 35  daga
Ungatími:      77 - 91 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Álftin heldur sig á vötnum, tjörnum og í votlendi á sumrum og verpur á bökkum, í hólmum eða mýrum.

Hreiðrið er stór dyngja úr gróðri sem fuglarnir reyta upp, fóðrað með dúni. Þeir nota oft sama hreiðurstæðið ár eftir ár.

Kjörsvæði geld-, felli- og farfugla eru lífrík vötn, ár og óshólmar, einnig lygnir vogar og strandlón.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort