Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        64 cm 
Þyngd:        1200 g
Vænghaf:   120  -  150 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Þessi stóri hröfnungur er eini innlendi fulltrúi ættar sinnar. Hvert mannsbarn þekkir krumma sem er bæði elskaður og hataður af þjóðinni.

Hann er stærstur allra spörfugla, sterklega byggður, með fremur langa og breiða fingraða vængi og fleyglaga stél.

Flug hrafnsins er þróttmikið, vængjatökin djúp og hann flýgur beint og oft hátt og lætur sig svífa á þöndum vængjum. Lætur sig oft falla með aðfellda vængi og leikur alls kyns fluglistir. Hoppar gjarnan jafnfætis.

Hrafnar eru félagslyndir og halda sig í hópum eða pörum.

Fæða: Skordýr, ormar, ber, hræ og úrgangur.

Hrafn   -   Corvus corax

Fjöldi eggja:   4 - 6    
Liggur á:       20 - 21  daga
Ungatími:      35 - 49 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í klettum, giljum og hraunum á láglendi, en er sjaldgæfur ofan 400 m hæðarlínu. Á Suðurlandsundirlendi og víðar verpa hrafnar á alls konar mannvirkjum: súrheysturnum, rafmagnsmöstrum, auðum útihúsum o.fl., hafa einnig orpið í trjám á N-landi.

Hreiðrið er mikill laupur úr alls kyns drasli, gripabeinum, sprekum og gaddavír, fóðrað með ull og fjöðrum og er því valinn staður á syllu eða í skúta.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort