
Músarrindill er ásamt auðnutittlingi minnstur íslenskra fugla og einn af einkennisfuglum birkiskóganna. Hann er auðþekktur á smæð, hnöttóttu vaxtarlagi, uppsperrtu stéli og þróttmiklum söng sem heyrist allt árið.
Músarrindillinn flýgur hratt og beint með höfuðið teygt fram og heyrist þytur þegar hann blakar vængjunum ótt og títt. Hann flýgur sjaldan og ekki langt í einu. Þegar hann situr sveiflar hann uppsperrtu stélinu stöðugt til og frá.
Hann er síkvikur en felugjarn og leitar sér ætis (skordýra) í þéttum gróðri og grónum urðum.
Er venjulega einfari eða fáir saman.
Fæða:
Skordýr og aðrar pöddur.
Fjöldi eggja:
6 - 8
Liggur á:
16 daga
Ungatími:
14 - 19 dagar