
Stari er þéttvaxinn, dökkur spörfugl, á stærð við skógarþröst og býr í nábýli við manninn.
Starinn flýgur beint, blakar vængjunum hratt eða lætur sig svífa og er auðþekktur á fluglagi og lögun. Hann syngur á setstað með lafandi eða skjálfandi vængi og úfnar hálsfjaðrir, einnig á veturna.
Hann situr hnarreistur og hleypur eða gengur á jörðu niðri en valhoppar ekki eins og þrestir.
Er ávallt félagslyndur og oft í stórum hópum við náttstaði.
Fæða:
Skordýr, ormar, sniglar og ber.
Fjöldi eggja:
4 - 6
Liggur á:
13 - 14 daga
Ungatími:
21 dagar