Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        15 - 16 cm 
Þyngd:        30 g
Vænghaf:   25  -  32 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Þessi kviki spörfugl er algengur í grýttu og lítt grónu landi, er ívið stærri og þreknari en þúfutittlingur.

Steindepillinn er kvikur og eirðarlaus, flýgur lágt og tyllir sér oft með rykkjum og hneigingum og sveiflar vængjum og stéli.

Er venjulega einfari eða fáeinir saman.

Fæða: Skordýr og aðrar pöddur.

Steindepill   -   Oenanthe oenanthe

Fjöldi eggja:   5 - 6    
Liggur á:       13  daga
Ungatími:      15 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í grýttu landi, urðum, hlöðnum veggjum, mólendi, hraunum o.þ.h., mest á láglendi. Hreiðrið er haganlega ofin karfa, staðsett í holu eða sprungu milli steina. Verpur stundum tvisvar á sumri.

Er utan varptíma gjarnan í fjörum, ræktuðu landi og mýrum.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort