
Algengasti spörfugl landsins, stundum nefndur grátittlingur. Hann er einn af okkar bestu söngfuglum.
Er minni en snjótittlingur, hálsstuttur, með breiða, stutta vængi og fremur kubbslegur.
Flug þúfutittlings er reikult og flöktandi. Hann flýgur stundum beint upp í loftið, lætur sig falla niður aftur á svifflugi og syngur um leið.
Hann flögrar mikið um og tyllir sér á þúfur eða í tré þess á milli, er félagslyndur utan varptíma.
Fæða:
Skordýr og aðrir hryggleysingjar.
Fjöldi eggja:
5 - 6
Liggur á:
13 daga
Ungatími:
10 - 14 dagar