Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        41 - 46 cm 
Þyngd:        400 g
Vænghaf:   110  -  125 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Kjóinn er mun minni en ættingi hans, skúmurinn. Langar oddhvassar miðfjaðrir sem skaga 5-10 cm aftur úr stélinu eru einkennandi. Tvö litarafbrigði eru af kjóa, dökkt og ljóst.

Vængir kjóans eru langir og hann er rennilegur og flugfimur fugl sem eltir oft uppi aðra fugla, einkum kríu, ritu, lunda og fýl, þreytir þá og neyðir til að sleppa eða æla upp æti sínu. Er hann þá snöggur að grípa fenginn á lofti.

Fæða: : Fiskur, smádýr, egg og ungar.

Kjói   -   Stercorarius parasiticus

Fjöldi eggja:   2    
Liggur á:       25 - 28  daga
Ungatími:      25 - 30 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í margs konar kjörlendi frá fjöru til fjalls, mýrum, móum, hálendisvinjum og jafnvel jökulskerjum. Getur myndað dreifðar byggðir á söndum og aurum jökuláa.

Hreiðrið er lítilfjörleg dæld í mosa eða annan gróður.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort