
Sandlóa er með minnstu vaðfuglum hér, álíka stór og sendlingur og lóuþræll, og er hálsstutt og fremur kubbslega vaxin. Þessi litli fugl er fjörlegur og kvikur.
Hann er vænglangur og flýgur yfirleitt hratt og lágt og með reglulegu vængjablaki.
Fremur félagslyndur utan varptíma.
Fæða:
Skordýr, krabbadýr, sniglar og ormar.
Fjöldi eggja:
4
Liggur á:
24 daga
Ungatími:
24 dagar