
Skúmur er einkennisfugl hinna miklu sanda S- og SA-lands. Honum svipar til kjóa en er þó mun stærri og þreknari, minnir á stóran, dökkan, hálsstuttan máf.
Skúmurinn er mjög kröftugur flugfugl og ótrúlega fimur þrátt fyrir þyngslalegan vöxt. Hann er þekktur fyrir að leggja aðra sjófugla í einelti, svartfugla, máfa og jafnvel súlur, og þvinga þá til að sleppa eða æla æti sínu.
Hann er afar árásargjarn við hreiður sitt. Félagslyndur á varpstöðvum en fer oft einförum utan þeirra.
Fæða:
Fiskur, fugl og fiskúrgangur.
Fjöldi eggja:
2
Liggur á:
29 daga
Ungatími:
44 dagar