
Sílamáfur líkist svartbak en er allmiklu minni og nettari. Vængir sílamáfs eru mjórri og odddregnari en svartbaks og ná lengra aftur fyrir stélið aðfelldir. Hann er léttur á sundi.
Sílamáfur er félagslyndur og algengur í þéttbýli, spakari en svartbakur.
Hann sækir meira í skordýr en aðrir stórir máfar.
Fæða:
Fiskur, kræklingar, skordýr, ormar, hræ og úrgangur.
Fjöldi eggja:
3
Liggur á:
24 - 27 daga
Ungatími:
30 - 40 dagar