Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        64 - 78 cm 
Þyngd:        2000 g
Vænghaf:   150  -  165 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Svartbakur eða veiðibjalla er stærstur máfa og líkist sílamáfi í útliti. Þessi stóri fugl er ávallt tignarlegur að sjá. Hann flýgur með hægum, kraftmiklum vængjatökum.

Er félagslyndur og oft með öðrum máfum.

Gefur frá sér djúpt og snöggt hlakk, er djúpraddaðastur máfa.

Fæða: Fiskur, hryggleysingjar, ungar, hræ, úrgangur.

Svartbakur   -   Larus marinus

Fjöldi eggja:   2 - 3    
Liggur á:       27 - 28  daga
Ungatími:      49 - 56 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í margs konar kjörlendi við sjó, t.d. á söndum, eyjum, skerjum, í mýrum og á fjallskollum, einnig inn til landsins á eyjum í vötnum og á áreyrum, í hálendisvinjum eða jafnvel á jökulskerjum.

Hreiðrið er allmikil dyngja, gerð úr sprekum, þangi, grasi og lyngi, oft á þúfu eða annarri mishæð.

Svartbakur heldur sig á grunnsævi eða við strendur á vetrum og sést stundum langt inni í landi.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort