Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        34 - 37 cm 
Þyngd:        300 g
Vænghaf:   100  -  110 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Hettumáfur er algengur votlendisfugl og minnsti máfurinn sem verpur hér á landi. Hann er oftast auðþekktur, ljósari, minni og léttari á flugi en rita og stormmáfur.

Hettumáfur er ekki eins mikill sjófugl og rita. Hann sést oft við fæðuleit í fjörum, á leirum og við skólpræsi. Stundum eltir hann sláttuvélar eða plóga og hremmir skordýr sem koma í ljós í slægjunni eða plógfarinu.

Félagslyndur og fremur spakur.

Fæða: : Skordýr, sniglar, ormar, fiskur, úrgangur, ber.

Hettumáfur   -   Larus ridibundus

Fjöldi eggja:   2 - 3    
Liggur á:       23 - 26  daga
Ungatími:      35 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í byggðum í margs konar kjörlendi á láglendi, bæði blautu og þurru, en er hændastur að votlendi; er við strendur, á söndum, í mýrlendi og við vötn og tjarnir girtar ljósastör, stundum í nábýli við kríu. Hreiðrið er dyngja úr þurrum gróðri, getur orðið stórt um sig í votlendi.

Vetursetufuglar eru í höfnum og við þéttbýli.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort