Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        40 - 44 cm 
Þyngd:        300 g
Vænghaf:   70  -  82 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Jaðrakan er einn af einkennisfuglum votlendis á láglendi. Hann er háfættur, hálslangur og spengilegur, álíka stór og spói.

Fluglag er ákveðið, með hröðum vængjatökum. Fuglinn er hávær og órólegur á varpstöðvum.

Hann er félagslyndur utan varptíma. Gefur frá sér hrjúft kvak og hvellt nefhljóð á varptíma, annars þögull.

Fæða: Ormar, sniglar, krabbadýr og skordýr.

Jaðrakan   -   Limosa limosa

Fjöldi eggja:   4    
Liggur á:       22 - 24  daga
Ungatími:      25 - 35 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Eindreginn votlendisfugl, verpur í og við margs konar votlendi á láglendi, t.d. flæðiengi, flóa og hallamýrar, og jafnvel í lyngmóum og kjarrlendi, en aldrei langt frá vatni. Hreiðrið er dæld í gróður, fóðrað með sinu og venjulega vel falið.

Heldur sig utan varptíma mest í votlendi, á túnum og leirum. Var fyrir 1920 bundinn við Suðurlandsundirlendið en hefur breiðst mjög út á undanförnum áratugum og verpur nú á láglendi um mestallt land.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort