Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        40 - 42 cm 
Þyngd:        500 g
Vænghaf:   76  -  89 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Spói er stór vaðfugl, háfættur og rennilegur.

Á flugi þekkjast spóar á hröðum vængjatökum. Þeir fljúga oft um í hópum síðla sumars, áður en þeir yfirgefa landið.

Spóinn er annars fremur ófélagslyndur. Hann tyllir sér oft á háan stað, t.d. fuglaþúfu, og vellir.

Söngur spóans, vellið, er eitt af einkennishljóðum íslenska sumarsins.

Fæða: Skordýr, sniglar, ormar, krabbadýr og ber.

Spói   -   Numenius phaeopus

Fjöldi eggja:   4    
Liggur á:       27 - 28  daga
Ungatími:      35 - 40 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Varpkjörlendi er bæði í þurru og blautu landi, þéttleikinn er mestur í hálfdeigjum og þar sem mætast votlendi og þurrlendi, en hann verpur líka í lyngmóum, grónum hraunum, blautum mýrum og hálfgrónum melum og söndum.

Hreiðrið er sinuklædd grunn laut í lágum gróðri, venjulega óhulið.

Er utan varptíma oft í túnum en sést sjaldan í fjörum. Algengur á láglendi um land allt en strjáll á hálendinu.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort