Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        40 - 45 cm 
Þyngd:        600 g
Vænghaf:   80  -  86 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Tjaldurinn er auðgreindur á stærð og lit en hann er í hópi stærstu vaðfugla sem verpa á Íslandi.

Tjaldur er hávaðasamur og félagslyndur fugl.

Hann er kröftugur flugfugl en vængjatökin eru ekki djúp. Hann flýgur venjulega fremur lágt.

Er einn fárra vaðfugla sem matar unga sína.

Á vefnum Fjaran og hafið er myndband af tjaldi.

Fæða: Kræklingur, ormar, skordýr, sniglar og krabbadýr.

Tjaldur   -   Heamatopus ostralegus

Fjöldi eggja:   2 - 4    
Liggur á:       24 - 27  daga
Ungatími:      28 - 32 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur einkum í möl og sandi nálægt sjó en einnig við ár og vötn inn til landsins, stundum í grónu landi og oft í vegköntum, stöku sinnum á húsþökum.

Hreiðrið er grunn dæld í sendna jörð eða möl, ávallt á berangri, fóðrað innan með þurrum gróðri, smásteinum og skeljabrotum.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort