• Jaðrakan

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Jaðrakan að vetri til

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Jaðrakan – ungfugl

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Karlfugl/kvenfugl

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Jaðrakan er einn af einkennisfuglum votlendis á láglendi. Hann er háfættur, hálslangur og spengilegur, álíka stór og spói. Á sumrin er hann rauðbrúnn um höfuð, háls og niður á bringu en annars með brúnleitu mynstri, kvenfugl er litdaufari og stærri en karlfugl. Í vetrarbúningi er hann jafnlitur, grábrúnn að ofan og ljós að neðan. Ungfugl er rauðgulbrúnn á höfði, hálsi og bringu og minnir á fullorðna fugla í sumarfiðri. Á flugi sjást áberandi hvít vængbelti, hvítur gumpur og stél með svörtum afturjaðri. Fluglag er ákveðið, með hröðum vængjatökum. Fuglinn er hávær og órólegur á varpstöðvum. Hann er félagslyndur utan varptíma. Gefur frá sér hrjúft kvak og hvellt nefhljóð á varptíma, annars þögull. Sumum finnst hann segja: „vaddúddí – vaddúddí“ og „vita-vita-vita.“


Fæða og fæðuhættir:
Potar með goggnum djúpt í leirur, mýrar eða tjarnarbotna eftir ormum, skeldýrum, sniglum, lirfum og öðrum hryggleysingjum, tekur einnig fæðu úr jurtaríkinu, svo sem fræ og ber.


Fræðiheiti: Limosa limosa

Kjörlendi og varpstöðvar

Eindreginn votlendisfugl, verpur í og við margs konar votlendi á láglendi, t.d. flæðiengi, flóa og hallamýrar, og jafnvel í lyngmóum og kjarrlendi, en aldrei langt frá vatni. Hreiðrið er dæld í gróður, fóðrað með sinu og venjulega vel falið. Heldur sig utan varptíma mest í votlendi, á túnum og leirum.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Farfugl. Jaðrakan var fyrir 1920 bundinn við Suðurlandsundirlendið en hefur breiðst mjög út á undanförnum áratugum og verpur nú á láglendi um mestallt land. Íslenskir jaðrakanar hafa vetrardvöl í Vestur-Evrópu suður til Portúgals og Spánar og eitthvað í Marokkó, nyrst í Afríku, en flestir á Írlandi. Íslenski jaðrakaninn (undirtegundin L.l. islandica) er á norður- og vesturmörkum útbreiðslusvæðis tegundarinnar, sem verpur dreift um Vestur- og Mið-Evrópu, aðallega í Hollandi og austur um Rússland.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR