• Gargönd

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Kolla með unga

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Steggur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Kolla og steggur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Steggur og kolla

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Gargönd er sjaldgæf önd. Hún er ívið minni og grennri en stokkönd en annars eru kollur þeirra mjög líkar. Steggur líkist kollu meira en hjá öðrum buslöndum. Hann er grár, brúnni á höfði og hálsi, með svartyrjótta bringu, brúnar axlafjaðrir, svartan afturenda og grátt stél. Kviður er ljós. Í felubúningi verður steggur vart greindur frá kollu. Kollan minnir á stokkandarkollu, en er grárri, minni og grennri, með hnöttóttara höfuð, og gogg og vængspegla í öðrum litum. Bæði kyn hafa hvíta spegla með svörtum jöðrum og ryðrauða bletti á vængþökum.

Atferli er svipað og hjá stokkönd. Gargöndin er hraðfleyg og einnig góður sundfugl, fremur felugjörn og lætur lítið á sér bera. Er í pörum eða smáhópum, venjulega innan um aðrar buslendur.


Fæða og fæðuhættir:
Er aðallega grasbítur, en etur einnig dýrafæðu. Tekur græna plöntuhluta nykra, grænþörunga, o.fl., einnig fræ, en uppistöðufæða unga og ungamæðra er dýrakyns.


Fræðiheiti: Anas strepera

Kjörlendi og varpstöðvar

Heldur sig einkum í lífríkum starmýrum og við grunnar tjarnir og polla á láglendi. Verpur nærri vatni í þéttum gróðri, undir þúfum, runnum og háu grasi. Hreiðrið er dæld, fóðruð með sinu og dúni.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Gargöndin er farfugl. Hún er algengust við Mývatn og Laxá, en verpur annars strjált á góðum andastöðum um land allt, m.a. við Reykjavíkurtjörn og víðar á Innnesjum. Vetrarstöðvar eru á Bretlandseyjum, aðallega á Írlandi. Fáeinir fuglar halda til á Reykjavíkursvæðinu yfir veturinn. Varpheimkynni eru víða á norðurhveli en nyrstu varpstöðvarnar eru hér á landi.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR