• Lóuþræll

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Lóuþræll að vetri til

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Lóuþræll – ungfugl

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Lóuþræll er smávaxinn vaðfugl sem einkennir votlendi á sumrin, en fjörur síðsumars. Á sumrin er hann gulbrúnn og svartflikróttur að ofan en ljósari að neðan með stóran, svartan blett eða svuntu neðarlega á bringunni og aftur á kvið. Á flugi má sjá mjó hvít vængbelti. Gumpur er hvítur með dökkri rák í miðju og stél grátt, einnig með svartri miðrák. Á veturna missir hann svörtu svuntuna. Ungfugl er svuntulaus, með áberandi rákótta bringu. Kynin eru eins. Flýgur hratt, í hópum á flugi bregður til skiptis fyrir ljósum kviðnum og brúnu bakinu. Allir fuglarnir í hópnum snúa sér samtímis. Hann stendur fremur hokinn. Er félagslyndur utan varpstöðva, er þá oft í stórum hópum á leirum og söndum með öðrum vaðfuglum. Sést oft í fylgd með lóum á vorin og dregur af því nafn sitt, ásamt því að bera svipaðan fjaðurham og lóan.


Fæða og fæðuhættir:
Dýraæta, tekur skordýr, m.a. mýrlirfur, smá skeldýr, snigla og burstaorma. Leitar ætis í hópum utan varpstöðva, oftast í fjörum.


Fræðiheiti: Calidris alpina

Kjörlendi og varpstöðvar

Verpur í margs konar mýrlendi, forblautu jafnt sem hálfdeigu, en einnig í þurrara graslendi og móum og er þéttasta varpið á Suðurlandsundirlendinu. Hreiðrið er dæld í gróðurlendi, fóðrað með sinu, venjulega vel falið. Heldur sig utan varptíma mest í fjörum en einnig í votlendi inn til landsins.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Lóuþræll er farfugl. Vetrarstöðvar íslenskra fugla eru aðallega í Vestur-Afríku. Grænlenskir lóuþrælar fara hér um vor og haust, sumir þeirra eru ljósari en þeir íslensku. Örfáir fuglar sjást stundum í fjörum á Suðvesturlandi á veturna. Lóuþræll verpur allt í kringum Norður-Íshafið og suður til Englands og Póllands.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR