Aftur á upphafssíðu
 

 

 

Á þessum vef eru upplýsingar og myndir af rúmlega 100 íslenskum plöntutegundum. Hér til hliðar er listi yfir allar plönturnar. Ef smellt er á plöntunafn opnast síða með upplýsingum um plöntuna. Á vefnum er einnig hægt að sjá plönturnar flokkaðar eftir búsvæðum.

Þá er að finna á vefnum einfalt plöntugreiningarkerfi ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref. Greiningareinkennin eru fá og einföld. Þær tegundir sem falla inn í þetta kerfi eru aðeins blómplöntur með áberandi blóm. Kerfinu er fyrst og fremst ætlað að glæða áhuga barna á plöntugreiningu.

Ekki er ætlunin með vefnum að hann komi í stað flórubóka. Með því að nota greiningarkerfið og nota fyrst augljós einkenni er hægt að koma fjölda plantna niður í 2 til 10 en þá er auðveldara að fletta upp í flórubók.

 

Námsgagnastofnun - Upphafssíða

Sláðu inn bókstaf:
Plöntugreining
Leikir
Um vefinn
Valllendi
Fjara
Votlendi
Kjarr og skóglendi
Holt og móar
Melar og sandar
Til fjalla